غدًا
Queering Iceland — Útgáfuhóf
حول الحدث
Nýtt fræðirit um sögu samkynhneigðra á Íslandi
Á menningarnótt í Reykjavík laugardaginn 22. ágúst er boðið til útgáfuhófs í sal Samtakanna ’78 við Suðurgötu 3, milli kl. 16–18. Það eru höfundar nýrrar bókar á ensku sem standa að boðinu, Jón Ingvar Kjaran, Mohammad Naeimi og Þorvaldur Kristinsson. Bókin nefnist „Queering Iceland: Activism and the Politics of Public Pedagogy 1975–2000“. Palgrave-McMillan í New York gefur bókina út. Að sögn höfunda felst sérstaða bókarinnar einkum í því að henni er ekki ætlað að miðla þeirri kunnuglegu sögutúlkun að saga homma, lesbía og annars hinsegin fólks felist í stöðugri framþróun – frá ofsóknum og niðurlægingu til sátta og virðingar. Bókinni er aftur á móti ætlað að draga fram hve dýrkeypt sú barátta var sem loks birtist í þeim framförum sem við þekkjum í dag. Höfundar íhuga og ræða þá hægfara viðleitni sem fólst í því að breyta viðhorfum í örríkinu Íslandi. Sú viðleitni tók á sig margvíslegar myndir – ótaldar samræður við stjórnmála- og embættismenn, lítil blaðagrein hér, fámenn mótmæli þar, ellegar fyrsti vísir að félagslífi til að styrkja samstöðu hópsins. Allt þetta skilaði málstað hinsegin fólks áleiðis skref fyrir skref en það gerðist ekki án andstöðu, þöggunar, ósigra og vonbrigða.
Í verkinu er lögð aðaláherslu á það hvernig hommar og lesbíur beittu fræðslustarfi, útgáfu, stöðugum málflutningi í fjölmiðlum og opinberum sýnileika til að vinna land á fyrstu árum hreyfingarinnar og afla málstað hennar fylgi á þeim árum þegar megnir fordómar og andleg einangrun einkenndu íslenskt þjóðfélag.
Við bjóðum ykkur öll velkomin á menningarnótt í Suðurgötu 3, kl. 16–18.
Nearby Hotels
via Stay22Reykjavik, Iceland افتح في الخرائط →
فعاليات أخرى في الجوار
Last verified: 21 Aug 2026 Source: samtokin78.is Report an issue