Fjölkæri / Polyamorous In 2 Wochen
LGBTQ+-Event

Fjölkæri / Polyamorous

Tuesday, 15 September 2026 · 18:30 – 20:30 samtokin78.is, Reykjavik, Iceland
Get Tickets
2h

Über die Veranstaltung

Samtökin ’78 bjóða nú upp á mánaðarlega hittinga fyrir hinsegin fólk sem tengist fjölkæru/poly samböndum, hvort sem þú ert að:

Íhuga eða forvitin/nn/ð um fjölkær/poly sambönd.
Taka fyrstu skrefin í átt að eða í fjölkæru/poly samböndum.
Ert með mikla reynslu og skilning á fjölkæri, sem þig langar að deila.

Ástrós Erla, Margrét og Alexander, ráðgjafar hjá Samtökunum‘78, leiða hittingana og þær umræður sem eiga sér stað hverju sinni. Markmið þeirra er að skapa rými þar sem fjölkært/poly fólk getur fundið stuðning, fengið ráðleggingar og byggt upp tengsl við aðra innan hinsegin samfélagsins sem hafa svipaða reynslu og áhuga.
Markmið hópsins: Að skapa öruggt og hlýlegt rými þar sem þú getur deilt reynslu þinni og upplifun. Við viljum efla samfélag fjölkærra og deila með hvort öðru verkfærum sem geta hjálpað við áskoranir líkt og afbrýðisemi, traust, tímastjórnun og samfélagslega fordóma.
 
Það getur verið stórt skref að mæta á eða prófa eitthvað nýtt, þannig við viljum minna þig á að:

Þú ert hjartanlega velkomin/nn/ð eins og þú ert. Þessi hópur fagnar fjölbreytileika og þú þarft ekki að vera neitt annað en þú sjálf/ur/t.
Þú ert ekki ein/nn/tt. Hér eru margir sem deila svipuðum tilfinningum, áskorunum og upplifunum og vilja tengjast og styðja hvert annað.
Þú ræður þátttökunni. Það er ekkert sem krefst þess að þú tjáir þig ef þú ert ekki tilbúin/nn/ð. Að hlusta er líka ómetanlegt framlag.
Öruggt rými í trúnaði. Hér er pláss fyrir þig til að vera sönn/sannur/satt án ótta við fordóma, vanþóknun eða útskúfun.
Samfélag sem byggir upp. Að heyra sögur annarra—bæði góðar og erfiðar—getur veitt þér og öðrum nýja sýn, styrk og innblástur á eigin ferðalagi.
Þú skiptir máli. Hvort sem þú ert nýr í fjölkæri, forvitin/nn/ð eða vön/vanur/vant, þá hefur reynsla þín gildi og hjálpar öðrum í hópnum á sinni vegferð.

Hvar: Samtökin ‘78, Suðurgata 3, ReykjavíkÞátttaka: Ókeypis og öllum opin 18 ára og eldri, óháð kynhneigð, kyni og reynslu.

Við hlökkum til að sjá þig og skapa saman samfélag þar sem við fáum öll frelsi til að vera eins og við erum!

Nearby Hotels

via Stay22
Nearby Hotels
Loading map…

Reykjavik, Iceland In Maps öffnen →

Weitere Events in der Umgebung

Last verified: 4 Sep 2026 Source: samtokin78.is Report an issue

Nichts verpassen

Die neuesten LGBTQ+-Events und Eröffnungen direkt in Ihr Postfach.

Geben Sie Ihre E-Mail ein, um Pride-Event-Updates und Hinweise zu neuen Locations zu erhalten.

Schon Abonnent? Abmelden

Ihre Datenschutz-Einstellungen. Wir verwenden Cookies, um GayOut zu betreiben und, mit Ihrer Zustimmung, die Nutzung zu messen. Mehr erfahren ↗