In 2 weeks
Algóritminn og bakslagið: Hver stjórnar hvað við hugsum?
About the event
Norðurlöndin hafa náð miklum árangri í að standa vörð um jafnrétti og réttindi hinsegin fólks, en hvernig samræmist það algóritmum sem hafa það eitt að markmiði að líma okkur sem lengst við skjáinn, jafnvel þótt það valdi skautun og bakslagi? Hvað ef sakleysislegur smellur á aðeins eitt vídeó mótar allt efni sem ber fyrir augu ungra notenda framvegis?
NORDREF, Transfeminiinit, Samtökin 78 og Ofbeldisvarnaskólinn kynna nýjar norrænar rannsóknarniðurstöður um hvernig efni algóritmar samfélagsmiðlanna halda að ungu fólki um transmálefni og bjóða gestum að svara spurningunni: Geta algóritmar hatað? Á tímum gervigreindar, upplýsingaóreiðu og áróðurs, hver stjórnar því hvað við hugsum?
Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, fer með opnunarávarp. Aðrir viðmælendur eru yfirmaður stefnumótunar hjá TikTok, umboðsmaður jafnréttismála í Finnlandi, framkvæmdastjóri Samtakanna 78, yfirmaður stefnumótunar hjá SASHA SafeShare, framkvæmdastjóri Transfeminiinit, sérfræðingur frá Netvís og fleiri.
Staðsetning: Háteigur, Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni.Dagskráin fer fram á ensku.Aðgangur ókeypis á meðan húsrúm leyfir – ATH SKRÁNING FER FRAM HÉR OG MIÐI ER SKILYRÐI FYRIR INNGÖNGU: https://www.nordref.org/event-details/algoritminn-og-bakslagid-hver-stjornar-hvad-vid-hugsum
Nearby Hotels
via Stay22Reykjavik, Iceland Open in Maps →
Our three picks · Reykjavik
via Stay22Budget guesthouse near the Laugavegur and Snorrabraut corner in central Reykjavík, walkable to the main bar and shopping street.
Boutique hotel on Kirkjutorg in downtown Reykjavik, next to Austurvöllur square and the cathedral.
More events nearby
Last verified: 26 Oct 2026 Source: samtokin78.is Report an issue